Interim report
Page 1
66DPDQGUHJLQQQ ¡UVKOXWDUHLNQLQJXUUVDPVW¦°X PDUVV¡JºVWW6 Bera hf. – Grjótháls 7-11 – 110 Reykjavík – Iceland – berahf.is – Kt. 420369 7789 – VSK nr. 11211
Page 2
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. Skýrsla stjórnar og forstjóra 2 Könnunaráritun óháðs endurskoðanda 4 Samandreginn rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu samstæðu 5 Samandreginn efnahagsreikningur samstæðu 6 Samandregið eiginfjáryfirlit samstæðu 7 Samandregið sjóðstreymi samstæðu 8 Skýringar með samandregnum árshlutareikningi samstæðu 9 Bera hf. Kennitala 420369-7789 Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík Efnisyfirlit
Page 3
Skýrsla stjórnar og forstjóra Meginstarfsemi samstæðunnar Bera hf. er íslenskt hlutafélag og starfar í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995. Bera er móðurfélag samstæðu sem framleiðir, flytur inn, dreifir og selur drykkjarvörur, matvæli og sérvöru um allt land. Móðurfélagið veitir dótturfélögunum sameiginlega stoðþjónustu. Nýtt skipulag samstæðunnar tók gildi 1. mars 2026. Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóð legan reikningsskilastaðal IAS 34 eins o g hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Árshlutareikningurinn hefur að geyma árshlutareikning Beru hf . og dótturfélaganna Ölgerðarinna r Egils Skallagrímssonar ehf., Da nól ehf., Mýra fasteignafélags ehf., Gæðabaksturs ehf., Kjarnavara ehf., Iceland Spring ehf. og Collab ehf. Auk þeirra tekur hann til KK6 fasteignafélags ehf. og Hólmsheiðar ehf. (dótturfélög Mýra fasteignafélags ehf.), Pure Distribution US LLC (dótturfélag Iceland Spring ehf.), Collab DK ApS (dótturfélag Collab ehf.) og Innbaks ehf. og Nonna litla ehf. (dótturfélög Kjarnavara ehf.). Samstæðan skiptist í sjö starfsþætti: Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur, Kjarnavörur, Útflutningur, Mýrar og Samstæða. Rekstur og fjárhagsleg staða Rekstur Beru gekk vel á tímabilinu. Vörusala samstæðunnar jókst um 18% á tímabilinu og framlegð um 31%. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 3.677 millj. kr. og hækkaði um 1.096 millj. kr. milli ára. Hagnaður tímabilsins var 1.817 millj. kr. og hækkaði um 563 millj. kr. miðað við sama tímabil í fyrra. Mestu munaði um innkomu Gæðabaksturs og Kjarnavara, sem bættust við samstæðuna 1. desember 2 025 og voru því ekki hluti af samstæðunni á samanburðartímabilinu. Rekstur þeirra gekk samkvæmt áætlunum og var samanlögð EBITDA félaganna á fyrstu sex mánuðum ársins 619 millj. kr. Rekstur samstæðunnar utan Gæðabaksturs og Kjarnavara gekk vel á tímabilinu og var sérstaklega sterkur á öðrum ársfjórðungi þar sem EBITDA jókst um 508 millj. kr. eða 32% frá fyrra ári. Rekstur Iceland Spring gekk vel á tímabilinu og viðsnúningur á bæði tekju- og gjaldahliðinni. EBITDA Iceland Spring var á tímab ilinu 140 millj. kr. samanborið við 73 millj. kr. á sama tímabili í fyrra. Minni umsvif hafa verið í Collab útflutningi á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra sem bætir samanburð milli tímabila en félagið hefur þó áfram neikvæð áhrif á heildar EBITDA samstæðunnar. Í júní gaf félagið út nýjan tveggja ára skuldabréfaflokk sem er fyrsta markaðsfjármögnun félagsins til lengri tíma en 6 mánaða. Andvirðið var nýtt til niðurgreiðslu bankafjármögnunar og lækka þannig heildarvaxtakjör félagsins. Skuldastaða félagsins er áfram sterk og hafa nettó vaxtaberandi skuldir lækkað um 1.653 millj. kr. frá áramótum í takt við sterka afkomu og lágar fjárfestingar á tímabilinu og stendur hlutfall þeirra af EBITDA síðustu 12 mánaða í 1,9 samanborið við 2,6 um síðustu áramót. Í maí keyptu Kjarnavörur alla útistandandi hluti í Innbaki ehf. fyrir 89 millj. kr. en fyrir átti Kjarnavörur 68% hlut í félaginu. Ísbúð Vesturbæjar fór í söluferli í kjölfar kaupa Beru á Kjarnavörum sem kláraðist í júní þegar Kjarnavörur seldu allt hlutafé í Ísbúð Vesturbæjar ehf. til móðurfélags Tröll ferðaþjónustu ehf. Heildarvirði Ísbúðarinnar í viðskiptunum var 215 millj. kr. og nam endanlegt söluverð, að teknu tilliti til veltufjár við afhendingu, 252 millj. kr. Félagið hefur verið afhent kaupanda og afkoma Ísbúðarinnar fram að sölu er færð sem aflögð starfsemi. -2 - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf.
Page 4
Í júní undirrituðu Bera og Ölgerðin samninga um kaup á tilteknum viðskiptasamböndum Karls K. Karlssonar – Bakkus ehf. ásamt til heyrandi birgðum. Kaupverðið er um 438 millj. kr. og er áætlað að EBITDA vegna viðskiptasambandanna nemi um 100 millj. kr. á ári. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ný stjórn var kosin á aðalfundi félagsins þann 13. maí 2026. Stjórn var sjálfkjörin og skipti með sér verkum að fundi loknum: Andri Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, var kjörinn formaður og Rannveig Eir Einarsdóttir varaformaður. Í ágúst auglýsti Bera lokað alútboð vegna hönnunar og byggingar vöruhúss og dreifingarmiðstöðvar á Hólmsheiði. Húsið verður um 23 þúsund fermetrar og er gert ráð fyrir að starfsemi hefjist þar eftir um þrjú ár ef áformin ganga eftir. Bera og dótturfélög hafa um árabil unnið markvisst að sjálfbærni með stöðugum umbótum hjá samstæðunni. Umbótaverkefni miða að þ ví að draga úr sóun, nýta auðlindir betur og minnka umhverfisáhrif starfseminnar. Losun frá eigin starfsemi hefur dregist saman um 63% frá 2020 og hefur félagið því þegar náð SBTi markmiði sínu um 42% samdrátt fyrir árið 2030. Samhliða aðgerðum til að draga úr losun hófst skógrækt í Lundarreykjadal með það að markmiði að skapa vottaðar kolefnisei ningar. Á árinu voru gróðursettar um 40.000 plöntur af þeim 350.000 sem áætlað er að gróðursetja í heild. Unnið er að endurnýjun SBTi-markmiða samkvæmt nýjum Corporate Net-Zero Standard 2.0, þar sem markmiðin verða uppfærð fyrir alla samstæðuna. Á árinu hlaut Bera ISO 14001-vott un fyrir umhverfisstjórnunarkerfi sitt, Sjálfbærniásinn þriðja árið í röð og 87 stig af 100 í UFS-mati Reitunar, sem samsvarar einkunninni A3. Á tímabilinu voru meðalstöðugildi samstæðunnar 591 samanborið við 436,1 árið áður. Hlutfall kvenna í samstæðunni var 34% en í stöðum yfirmanna og stjórnenda var hlutfall kvenna 41%. Í stjórn Beru eru 60% konur og 40% karlar. Önnur mál Bera leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð. Til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og til að skapa fyrirsjáanleika skuldbatt félagið sig í september til að hækka ekki verð á framleiðsluvörum dótturfélaganna um næstu áramót umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Yfirlýsing stjórnar og forstjóra Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samandreginn árshlutareikningur samstæðu Beru gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. mars – 31. ágúst 2026 og eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. ágúst 2026. Jafnframt er það álit okkar að samandreginn árshlutareikningur samstæðu og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu í lok tímabilsins og lýsi helstu áhættuþáttum sem samstæðan býr við. Reykjavík, 8. október 2026. Stjórn: Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Gerður Huld Arinbjarnardóttir Magnús Árnason Rannveig Eir Einarsdóttir Sigríður Elín Sigfúsdóttir Forstjóri: Jón Þorsteinn Oddleifsson - 3 - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf.
Page 5
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda Til stjórnar og hluthafa í Beru hf. Inngangur Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Beru hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2026. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar og forstjóra, sa mandreginn rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, samandreginn efnahagsreiknin g, samandregið ei ginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðfe rðir og aðrar skýringar. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusamban dinu. Ábyrgð okkar felst í þeirri ályktun sem af könnun okkar leiðir. Umfang könnunar Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 24 10, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikning um. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun. Ályktun Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Reykjavík, 8. október 2026 PricewaterhouseCoopers ehf. ___________________________ Magnús Ma r Vignisson -4 - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf.
Page 6
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. Rekstrarreikningur Yfirlit yfir heildarafkomu '000 ISK Skýr. 2026* 2025* 2026 2025 '000 ISK 2026* 2025* 2026 2025 Vörusala 3 15.729.356 12.999.911 29.071.182 24.608.909 Hagnaður tímabilsins 1.418.785 875.521 1.817.040 1.254.322 Áfengis- og skilagjald (3.837.783) (3.534.233) (6.850.489) (6.555.301) Hrein vörusala 11.891.573 9.465.677 22.220.693 18.053.607 Önnur heildarafkoma Framleiðslukostnaður 4 (6.823.025) (5.575.350) (13.044.827) (10.708.201) Framlegð 5.068.548 3.890.328 9.175.866 7.345.407 Þýðingarmunur vegna dótturfélags (74.503) (266.042) (81.216) (422.676) Heildarafkoma tímabilsins 1.344.282 609.480 1.735.824 831.647 Aðrar rekstrartekjur 13.087 11.202 28.888 16.459 Annar rekstrarkostnaður 4 (3.019.127) (2.593.209) (6.303.215) (5.383.596) 2.062.508 1.308.321 2.901.540 1.978.270 Heildarafkoma tímabilsins skiptist á eftirfarandi hátt: Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga (3.638) 1.914 3.182 3.829 Hluthafar Beru hf. 1.386.350 753.914 1.728.216 1.054.689 Fjármunatekjur 69.617 31.389 94.707 67.942 Hlutdeild minnihluta (42.068) (144.435) 7.607 (223.043) Fjármagnsgjöld (387.474) (251.357) (763.881) (487.682) Heildarafkoma tímabilsins 1.344.282 609.480 1.735.824 831.647 Gengismunur 24.233 337 22.356 (162) Hagnaður fyrir skatta 1.765.246 1.090.604 2.257.903 1.562.197 Tekjuskattur (349.437) (215.084) (445.412) (307.875) Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 1.415.809 875.520 1.812.491 1.254.322 Aflögð starfsemi 2.975 0 4.549 0 Hagnaður tímabilsins 1.418.785 875.520 1.817.040 1.254.322 Hagnaður tímabilsins skiptist á eftirfarandi hátt: Þróun EBITDA og EBIT 2026* 2025* 2026 2025 Hluthafar Beru hf. 1.419.462 888.558 1.764.474 1.248.347 EBITDA 52% 2.452.131 1.610.867 42% 3.677.152 2.581.298 Hlutdeild minnihluta (677) (13.037) 52.566 5.975 Afskriftir 29% 389.623 302.546 29% 775.613 603.028 Hagnaður tímabilsins 1.418.785 875.521 1.817.040 1.254.322 EBIT 58% 2.062.508 1.308.321 47% 2.901.540 1.978.270 Áframhaldandi starfsemi Hreinir fjármagnsliðir 34% (293.623) (219.631) 54% (646.818) (419.902) Hagnaður á hlut 0,49 0,31 0,61 0,44 Áhrif hlutdeildarfélaga -290% (3.638) 1.914 -17% 3.182 3.829 Þynntur hagnaður á hlut 0,47 0,30 0,59 0,43 Áframhaldandi og aflögð starfsemi Hagnaður á hlut 0,49 0,31 0,61 0,44 Þynntur hagnaður á hlut 0,47 0,30 0,59 0,43 * án endurskoðunar eða könnunar Samandreginn rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu samstæðu 1. júní til 31. ágúst 1. mars til 31. ágúst Hagn. f. fjármagnsliði og skatta (EBIT) Liðir sem síðar gætu verið flokkaðir í rekstur 1. júní til 31. ágúst 1. mars til 31. ágúst 1. júní til 31. ágúst 1. mars til 31. ágúst - 5 -
Page 7
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. Eignir Skuldir og eigið fé 31. ágúst 28. febrúar* 31. ágúst 28. febrúar '000 ISK Skýr. 2026 2026 '000 ISK Skýr. 2026 2026 FASTAFJÁRMUNIR EIGIÐ FÉ 19.042.547 18.673.144 2.884.060 2.863.897 4.771.182 4.771.182 1.513.987 1.395.624 8.143.472 8.144.072 Annað bundið eigið fé 6.984.913 4.824.430 Húsaleiguréttindi 178.820 202.620 Óráðstafað eigið fé 7.235.772 7.665.180 Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 471.392 468.210 Eigið fé sem tilheyrir eigendum móðurfélags 18.618.731 16.749.132 Skuldabréfaeign 624.415 730.795 Hlutdeild minnihluta 1.613.470 1.668.137 Fastafjármunir 33.231.828 32.990.024 Eigið fé samtals 20.232.201 18.417.269 SKULDIR VELTUFJÁRMUNIR Langtímaskuldir og skuldbindingar Birgðir 4.452.329 4.147.348 Vaxtaberandi langtímaskuldir 5 12.884.733 12.382.205 Viðskiptakröfur 4.700.677 4.144.876 Húsaleiguskuldbinding 141.325 165.137 Aðrar skammtímakröfur 101.603 111.221 Tekjuskattsskuldbinding 3.004.292 3.010.464 Handbært fé 3.802.665 2.503.660 Langtímaskuldir og skuldbindingar 16.030.350 15.557.806 Samtals 13.057.274 10.907.104 Eignir flokkaðar til sölu 0 274.824 Skammtímaskuldir Veltufjármunir samtals 13.057.274 11.181.928 Vaxtaberandi skammtímaskuldir 5 1.945.002 2.618.954 Næsta árs afborganir 5 305.344 464.247 Ógreiddur tekjuskattur 487.506 527.277 Eignir samtals 46.289.102 44.171.951 Viðskiptaskuldir 3.488.620 2.979.267 Aðrar skammtímaskuldir 3.800.077 3.585.902 * Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt. Sjá skýringu 1. Samtals 10.026.551 10.175.647 Skuldir vegna eigna flokkaðar til sölu 0 21.230 Skammtímaskuldir samtals 10.026.551 10.196.877 Skuldir samtals 26.056.901 25.754.682 Skuldir og eigið fé samtals 46.289.102 44.171.951 Samandreginn efnahagsreikningur samstæðu Varanlegir rekstrarfjármunir Hlutafé Óefnislegar eignir Yfirverðsreikningur hlutafjárViðskiptavild - 6 -
Page 8
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. '000 ISK 2.863.897 1.395.624 4.824.430 7.665.180 16.749.131 1.668.137 18.417.269 Hagnaður tímabilsins 1.764.474 1.764.474 52.566 1.817.040 Þýðingarmunur (36.258) (36.258) (44.958) (81.216) Heildarafkoma tímabilsins (36.258) 1.764.474 1.728.216 7.607 1.735.824 Innleystir kaupréttir 20.163 118.363 (10.823) 10.823 138.525 138.525 Gjaldfærðir kaupréttir 31.697 31.697 31.697 Hlutdeild minnihluta við kaup á dótturfél. (28.838) (28.838) (62.274) (91.112) Bundnar hlutdeildartekjur 2.175.867 (2.175.867) 0 0 Staða 31. ágúst 2026 2.884.060 1.513.987 6.984.913 7.235.772 18.618.731 1.613.470 20.232.201 '000 ISK 2.843.085 1.292.394 4.142.395 6.343.632 14.621.506 1.753.702 16.375.208 Hagnaður tímabilsins 1.248.347 1.248.347 5.975 1.254.322 Þýðingarmunur (193.658) (193.658) (229.018) (422.676) Heildarafkoma tímabilsins (193.658) 1.248.347 1.054.689 (223.043) 831.646 Innleystir kaupréttir 20.813 103.230 (10.823) 10.823 124.043 124.043 27.249 27.249 27.249 Bundnar hlutdeildartekjur 51.445 (51.445) 0 0 Staða 31. ágúst 2025 2.863.898 1.395.624 4.016.609 7.551.355 15.827.487 1.530.660 17.358.146 Staða 1. mars 2026 Samandregið eiginfjáryfirlit samstæðu Eigið fé eigenda móðurfélags Hreyfingar 1. mars - 31. ágúst 2026 Hlutafé Yfirverðs- reikningur Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals Hreyfingar 1. mars - 31. ágúst 2025 Gjaldfærðir kaupréttir Staða 1. mars 2025 - 7 -
Page 9
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2026 '000 ISK Skýr. 2026 2025 '000 ISK Skýr. 2026 2025 1.817.040 1.254.322 5 1.900.000 3.656.378 5 (2.565.038) (2.820.000) Kaupréttarsamningar 31.697 27.249 5 2.000.000 0 Afkoma hlutdeildarfélaga (3.182) (3.829) Afborganir langtímalána 5 (1.657.296) (152.964) Hagnaður af sölu á varanl. rekstrarfj. (14.062) (11.880) Afborgun húsaleiguskuldbindingar (26.391) (14.008) Afskriftir og virðisrýrnun 775.622 603.028 Kaup á hlutdeild minnihluta í dótturfélagi (91.112) 0 Breyting tekjuskattsskuldbindingar (6.100) (24.697) Innborgað hlutafé 120.285 124.043 Breyting á áföllnum vöxtum (5.229) 11.866 Sjóðstreymi af fjármögnun (319.552) 793.449 Hreint veltufé frá rekstri 2.595.786 1.856.057 Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur (519.633) (715.963) Birgðir (304.981) (419.645) Breyting á handbæru fé 1.296.602 857.447 Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 704.230 779.117 Áhrif gengisumreiknings á handbært fé 2.404 891 Handbært fé frá rekstri 2.475.402 1.499.566 Handbært fé í byrjun tímabilsins 2.503.660 1.273.246 Handbært fé í lok tímabilsins 3.802.665 2.131.584 Fjárfestingahreyfingar Varanlegir rekstrarfjármunir, breyting (1.200.628) (813.633) Skuldabréf, breyting 106.381 35.511 Frjálst fjárflæði Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 235.000 0 Handbært fé frá rekstri 2.475.402 1.499.566 Hreint sjóðstreymi við kaup á dótturfélagi 0 (657.446) Sjóðstreymi af fjárfestingum (859.247) (1.435.568) Sjóðstreymi af fjárfestingum (859.247) (1.435.568) Afborgun húsaleiguskuldbindingar (26.391) (14.008) Frjálst fjárflæði 1.589.763 49.990 Aðrar upplýsingar Innborgaðir vextir 112.375 30.695 Greiddir vextir (737.345) (491.120) Greiddur tekjuskattur (335.135) (272.638) Ný skammtímalán 1. mars til 31. ágúst 1. mars til 31. ágúst Samandregið sjóðstreymisyfirlit samstæðu Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi Hagnaður tímabilsins Fjármögnunarhreyfingar Afborganir skammtímalána Ný langtímalán - 8 -
Page 10
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. 1. Grundvöllur reikningsskila 2. Mat og ákvarðanir Skýringar Bera hf. (hér eftir Bera eða félagið, áður Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.) er hlutafélag og er megin starfsemi samstæðunnar fólgin í framleiðslu, sölu og markaðssetningu á sviði matvæla, drykkjarvara og tengdra vara. Bera er með heimilisfesti á Íslandi. Skráð aðsetur samstæðunnar er að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Beru fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2026 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu (EU) og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar" og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga". Árshlutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum (ISK), sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru í íslenskum krónum og þúsundum króna, nema annað sé tekið fram. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir Samandregni árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og ársreikningur samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði 28. febrúar 2026. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við síðasta ársreikning samstæðunnar sem er aðgengilegur á heimasíðu félagsins, www.berahf.is/fjarfestar. Við gerð samstæðuárshlutareiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga og alþjóðlega reikningsskilastaðla, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og mynda grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti. Þó svo að matið sé samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu. Breyting á samanburðarfjárhæðum Við kaup Beru hf. á Kjarnavörum ehf. í desember 2025 eignaðist samstæðan Ísbúð Vesturbæjar ehf., sem flokkuð var sem eign til sölu frá kaupdegi. Kaupverðsútdeilingu var ekki lokið við gerð samstæðuársreiknings 28. febrúar 2026 og var allur mismunur kaupverðs og bráðabirgðamats hreinna eigna færður sem viðskiptavild, sbr. skýringu 18 í þeim ársreikningi. Ísbúð Vesturbæjar ehf. var seld á öðrum ársfjórðungi 2026. Söluverð var 174 millj. kr. umfram bókfært virði og endurspeglar þann hluta viðskiptavildar sem rekja mætti til hennar. Bráðabirgðamatið hefur því verið leiðrétt innan matsfrests IFRS 3 og samanburðarfjárhæðum breytt þannig að viðskiptavild lækkar um 174 millj. kr. og eignir flokkaðar til sölu hækka um sömu fjárhæð. Kaupverðsútdeilingu vegna kaupa á Kjarnavörum ehf. og Gæðabakstri ehf. er að öðru leyti ólokið, en matsfrestur samkvæmt IFRS 3 er ekki liðinn. - 9 -
Page 11
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. 3. Starfsþáttayfirlit 1. mars - 31. ágúst 2026 Ölgerðin Danól Gæðabakstur Kjarnavörur Útflutningur Mýrar Samstæða Samtals 18.720.759 5.884.590 1.677.347 1.565.457 1.223.029 0 0 29.071.182 252.454 125.735 1.624 237.893 2.339 579.339 (1.199.384) 0 Samtals rekstrartekjur 18.973.213 6.010.325 1.678.971 1.803.350 1.225.368 579.339 (1.199.384) 29.071.182 2.267.831 186.621 261.953 357.006 59.006 473.807 70.928 3.677.152 (775.613) 2.901.540 (643.636) (445.412) 4.549 1.817.040 1. mars - 31. ágúst 2025 Ölgerðin Danól Gæðabakstur Kjarnavörur Útflutningur Mýrar Samstæða Samtals Tekjur utan samstæðu 17.779.592 5.601.377 1.227.939 0 0 24.608.909 Tekjur innan samstæðu 206.185 18.410 4.053 453.225 (681.873) 0 Samtals rekstrartekjur 17.985.777 5.619.788 1.231.993 453.225 (681.873) 24.608.909 Rekstrarh. fyrir afskr. (EBITDA) 2.032.765 271.199 (155.556) 415.600 17.290 2.581.298 Afskriftir (603.028) Rekstrarhagnaður 1.978.270 Fjármagnsliðir og hlutd. (416.072) Tekjuskattur (307.875) 0 1.254.322 Starfsþáttayfirlit Starfsþættir Tekjuskráning Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar vegna ólíkra efnislegra eða landfræðilegra þátta varðandi áhættu og afkomu annarra rekstrarstarfsþátta samstæðunnar. Rekstrarstarfsþættir eru skilgreindir í samræmi við innra skipulag og skýrslugjöf til stjórnenda sem notaðar eru í ákvarðanatöku. Samstæðan skilgreinir starfsemina í sjö starfsþætti. Á tímabilinu var starfsþáttayfirliti samstæðunnar breytt til samræmis við breytt innra skipulag og reglulega upplýsingagjöf til st jórnenda. Kjarnavörur, Gæðabakstur og Mýrar fasteignafélag eru nú birt sem sjálfstæðir starfsþættir, og tekjur innan samstæðu ásamt tilheyrandi jöfnunarfærslum eru nú sýndar sérstaklega fyrir hvern starfsþátt. Samanburðarfjárhæðir hafa verið endurgerðar í samræmi við IFRS 8. Breytingin hefur engin áhrif á áður birta afkomu eða eigið fé samstæðunnar. Fjármagnsliðir og hlutd. Tekjuskattur Aflögð starfsemi Hagnaður tímabilsins Tekjur af sölu á vörum og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt. • Ölgerðin er rekstrarfélag sem sér um framleiðslu, sölu og markaðssetningu drykkjarvara og tengdra vara. • Danól er rekstrarfélag sem sér um sölu og markaðssetningu á sviði matvæla, drykkjarvara, tengdra vara og annarrar sérvöru. • Gæðabakstur er rekstrarfélag sem sér um framleiðslu og sölu á brauðmeti og kökum. • Kjarnavörur er rekstrarfélag sem sér um framleiðslu og sölu á sósum, sultum og smjörlíki. • Útflutningur samanstendur af rekstri Iceland Spring ehf., sem sér um framleiðslu, sölu og markaðssetningu á átöppuðu vatni og Collab ehf., sem sér um sölu og markaðssetningu á Collab virknidrykknum erlendis. • Mýrar er samsett af rekstri Mýra fasteignafélags og dótturfélögum þess, KK6 fasteignafélag og Hólmsheiði, sem sjá um eignarhald á fasteignum undir rekstur Beru, Ölgerðarinnar og Danól að hluta til. • Samstæða samanstendur af rekstri móðurfélags Beru sem veitir stoðþjónustu til dótturfélaga innan samstæðunnar m.a. á sviði fjármála, innkaupa, vöruhýsingar og dreifingar, ásamt samstæðuáhrifum. Tekjur innan samstæðu Tekjur utan samstæðu Rekstrarhagnaður Aflögð starfsemi Hagnaður tímabilsins Rekstrarh. fyrir afskr. (EBITDA) Afskriftir - 10 -
Page 12
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. 4. Kostnaður sundurliðaður eftir eðli 2026 2025 Flokkun í rekstrarreikningi Framleiðslukostnaður 13.044.827 10.708.201 Annar rekstrarkostnaður 6.303.215 5.383.596 Samtals 19.348.042 16.091.795 Flokkun miðað við eðli Vörunotkun 10.576.012 9.156.674 Annar framleiðslukostnaður 628.027 488.825 Markaðs- og sölukostnaður 1.644.022 1.683.312 Laun og launatengd gjöld 4.251.216 2.843.470 Afskriftir 775.613 603.028 Annar rekstrarkostnaður 1.473.152 1.316.487 Samtals 19.348.042 16.091.796 Afskriftir eru flokkaðar á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi Framleiðslukostnaður 419.383 334.505 Annar rekstrarkostnaður 356.229 268.523 Samtals 775.613 603.028 Laun og launatengd gjöld eru flokkuð á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi Framleiðslukostnaður 1.218.321 557.970 Annar rekstrarkostnaður 3.032.895 2.285.500 Samtals 4.251.216 2.843.470 1. mars til 31. ágúst Framleiðslukostnaður samanstendur af beinum og óbeinum kostnaði við framleiðslu á fullunnum vörum sem skapa tekjur á árinu. Innan framleiðslukostnaðar er hráefniskostnaður, laun og launatengd gjöld og annar framleiðslukostnaður sem inniheldur húsnæðiskostnað, leigu og afskriftir vegna varanlegrar rekstrarfjármuna sem nýttir eru í framleiðslunni. Rekstrarkostnaður samanstendur af kostnaði við dreifingu og sölu á fullunnum vörum og þjónustu sem skapa tekjur á árinu ásamt kostnaði við stjórnun og rekstur samstæðunnar. Annar rekstrarkostnaður inniheldur laun og launatengd gjöld, húsnæðiskostnað, leigu, afskriftir af varanlegum og óefnislegum eigum, tryggingar sem og annan skrifstofu- og stjórnunarkostnað. - 11 -
Page 13
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. 5. Vaxtaberandi langtímaskuldir 31.8.2026 28.2.2026 Langtímaskuldir í íslenskum krónum (ISK) 13.138.405 12.795.701 Næsta árs afborgun (253.671) (413.495) Samtals langtímahluti 12.884.733 12.382.205 Víxilskuldir í íslenskum krónum (ISK) 1.841.813 2.467.042 Vaxtaberandi skammtímaskuldir í bandarískum dollurum (USD) 103.189 151.912 Samtals vaxtaberandi skammtímaskuldir 1.945.002 2.618.954 Næsta árs afborganir af langtímaskuldum 253.671 413.495 Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 51.672 50.752 Næsta árs afborgun langtímaskulda og leiguskuldbindingar 305.344 464.247 Afborganir af langtímaskuldum greinast þannig: 31.8.2026 28.2.2026 Afborganir innan 12 mánaða 253.671 413.495 Afborganir eftir 12-24 mánuði 2.222.337 1.479.742 Afborganir eftir 24-36 mánuði 2.231.276 2.266.139 Afborganir eftir 36-48 mánuði 241.169 260.936 Afborganir síðar 8.189.952 8.375.389 Samtals 13.138.405 12.795.701 Lántaka er flokkuð meðal skammtímaskulda nema samstæðan hafi óskilyrtan rétt til að fresta uppgjöri skuldarinnar í a.m.k. 12 mánuði eftir dagsetningu reikningsskila. Allar skuldir við lánastofnanir eru á óverðtryggðum breytilegum vöxtum. Meðalvextir skulda þann 31. ágúst 2026 voru 9,56% (28. febrúar 2026: 9,2%). Hluti langtímaskulda er háður sérstökum viðmiðunum um eiginfjárhlutfall. Í lok reikningsskilatímabilsins stóðust allir lánaskilmálar lánasamninga. Fjárskuldir, þar á meðal skuldir við lánastofnanir, eru upphaflega metnar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við aðferð virkra vaxta. Fjárskuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi í lok reikningsskiladags. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning. Samstæðan afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Aðrar skuldir, þar með talið, viðskiptaskuldir, skuldir við tengda aðila, virðisaukaskattur og aðrar skammtímaskuldir eru metnar á afskrifuðu kostnaðarverði sem jafnan samsvarar nafnvirði þeirra. - 12 -
Page 14
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Bera hf. 6. Kaupréttarsamningar Á reikningsskiladegi endurskoðar félagið mat sitt á áætluðum fjölda kauprétta sem ávinnast munu á grundvelli ávinnsluskilyrða sem ekki teljast markaðsskilyrði. Áhrif endurmatsins, ef einhver eru, eru færð í rekstrarreikning samstæðunnar með samsvarandi leiðréttingu meðal eigin fjár. Kaupverð, að frádregnum öllum beinum viðskiptakostnaði, er fært meðal hlutafjár (nafnverð) og á yfirverðsreikning hlutafjár þegar kaupréttirnir eru nýttir. Útistandandi kaupréttir í félaginu þann 31. ágúst 2026 nema 93.801 þúsund hlutum eða um 3,3% hlutafjár í félaginu (28. febrúar 2026: 113.964 þúsund hlutir eða 4,0% hlutafjár). Á tímabilinu voru 31,7 m.kr. (1. mars - 31.ágúst 2025: 27,2 m.kr.) gjaldfærðar í rekstrarreikningi Beru vegna kaupréttarsamninga. Á árunum 2021 og 2023 gerði félagið kaupréttasamninga við stjórnendur og tiltekið lykilstarfsfólk í samræmi við samþykkta starfskjarastefnu Beru, sjá nánar í ársreikningi félagsins fyrir fjárhagsárið sem lauk 28. febrúar 2026. Í lok ágúst 2025 gerði félagið einnig kaupréttarsamninga á grundvelli kaupréttaráætlunar sem nær til alls fastráðins starfsfólks í samstæðu Beru í samræmi við starfskjarastefnu sem var samþykkt á aðalfundi í maí 2025. Stjórn Beru hefur heimild til að gera upp útgefna kauprétti með útgáfu nýs hlutafjár. Samkvæmt nýju kaupréttaráætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hluti í Beru fyrir að hámarki 750 þúsund krónur einu sinni á ári í þrjú ár, fyrst þann 1. september 2026, næst þann 1. september 2027 og loks þann 1. september 2028, samtals fyrir allt að 2.250 þúsund krónur. Ávinnsla kaupréttar er bundin því skilyrði að kaupréttarhafi starfi fyrir félagið eða dótturfélag þess, en að öðrum kosti fellur áunninn en ónýttur kaupréttur niður ef starfsmaður lætur af störfum fyrir lok ávinnslutímabils. Alls gerðu 303 starfsmenn Ölgerðarinnar og dótturfélaga kaupréttarsamninga. Kaupréttarsamningarnir ná samtals til allt að 12.383 þúsund hluta á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta. - 13 -